Skálmöld
Album • 2016
Kvika streymir og kraftar losna, klettar brenna. Barnið dreymir en taugar trosna, tárin renna. Bráðna steinar og bergið flýtur, brostnir draummar. Ljósið veinar og loginn hvítur, landið kraumar. Bálið sem veldur bardögum bjarma á kveldið kastar. Surtur fer heldur hamförum, hér sefur eldur fastar. Jötnar æða um jörð í molum. Jöklar gráta. Ísinn bræða á æstum kolum. Æpir hnáta. Móðir huggar þar mædda dóttur. Múspall fagnar. Dansa skuggar er dofnar þróttur. Dagur þagnar. Þú deyrð í nótt! Himinninn er hulinn sóti, hraunið rennur okkur móti. Svartnætti til allra átta, illt er myrkur Múspellsnátta. Finnum hvernig fætur svíða, feigir eftir okkur bíða. Saman munum lífið láta, lítil rödd er hætt að gráta. Ryðst úr sprungum, gjám og gjótum gríðarbál í risafljótum. Loki gefur lausan tauminn, leikur sér við stríðan strauminn. Liggjum við á litlu skeri, lyftist glóðin nær. Sárt að hérna beinin beri barnung dóttir kær. Loks ég finn að lítill skrokkur lætur eftir sitt. Hraunið breiðir yfir okkur, elsku barnið mitt.
Submitted by Infernal Flame — Apr 26, 2025
Sem vetur konungur í klakahelli, út liðast Níðhöggur á Nábítsvelli Hrímþursar fylgja með á svörtu svelli Blikandi norðurljós á Niflheimsþaki, þrúgandi þögnin heldur traustataki Já, hér er ekkert nema kyrrð og klaki Þennan stað hýsir þjáningin, þursarnir vísast kaldir Heimurinn frýs við himininn, hér sefur ís um aldir Þursarnir væla meðan vindar gnauða og rokið skilur eftir skika auða Ísinn er sprunginn og hann spúir dauða Sofðu. Sofðu. Í lofti þokkafullar þokuslæður Hér er það ísinn sem að ríkjum ræður Hér deyja mennirnir og Múspellsbræður Sofðu. Sofðu. Nýr dagur rís Hér sefur ís Niflheimahliðin, þar fordæmdur fer Dagur er risinn en dimmt hvar sem er Dóttir mín litla, hvað gerði ég þér? Þá gýs úr Hvergelmi með ógn og ótta og þar með leggja allir lífs á flótta Það birtir ekki Nifls- á milli nótta Sofðu. Sofðu. Þar svífur vætturin á vængjum þöndum. Við erum fönguð þar sem fátæk stöndum og bundin kyrfilega klakaböndum Sofðu. Sofðu. Nýr dagur rís. Hér sefur ís. Léttir það varð þegar dóttir mín dó, sofðu sem fastast og finndu þér ró, faðmur minn verndar frá kulda og snjó
Submitted by Finntroll — Apr 26, 2025
Niðavellir, náhvítur máninn skín. Dvergahellir, dulúð þér villir sýn. Sindradætur, synir og börnin öll, vetrarnætur, verma þau klettafjöll. Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa. Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa. Galdrastafir, grafnir í stóran stein, dvergagrafir, dysjar og gömul bein. Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal. Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal. Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa. Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa. Trónir á mergi tinnugler, tindar úr bergi háir. Sindri og Hergill halla sér, hér sofa dvergar gráir. Heyr, mín kæra hefðarfrú, hér er gott að sofa. Á sig taka náðir nú, niðahjón og börnin þrjú. Þegar heyrist þrumugnýr, Þór við skulum lofa. Okkur geymir hellir hlýr, hér er gott að sofa. Náinn syngur næturljóð, núna sefur dvergaþjóð. --------------------------- Niðavellir, a corpse-white moon shines. Dwarf-cave, the mystery deceives your view. Sindri’s daughters, sons, and all children, in winter nights, they warm themselves in the stony mountains. Others build house and halls, castles and cabins. Come into the cave, because here, here it is good to sleep. Magical staves, carved in a massive stone, dwarf-graves, cairns, and old bones. Hel’s power, captured in the deep valley. Pitch-black darkness (nearly), in the golden hall. Lie down my children, yes, great is our living room. The stone floor is sparkling clean and here, here it is good to sleep. Being enthroned on flinty bedrock, the peaks of high mountains. Sindri and Hergill take a nap; the gray dwarves sleep here. Hear, my dear grande dame, Here it is good to sleep. Falling asleep now, the dark couple and the three children. When the clap of thunder is heard, we shall praise Thor. Inside our warm cave, here it is good to sleep. The indwellers sing a lullaby, now the dwarf-folk are sleeping.
Manstu hvað gerðist í Miðgarði þá? Ég sá, ég sá Margt fyrir löngu var búið til lag, ljóðið svo skrautlega skrifað Hetju sem barðist við vængjaða vá? Ég sá, ég sá Baldur sem barðist af drengskap þann dag, dó svo að við gætum lifað Vafrandi enn um hrollkalt hraun, hrakin sig glennir vofa Hitinn frá brennu huggar raun, hér sofa menn í kofa Kvöld úr norðri, kalt í hlíðum, knýr að dyrum myrkrið svart Þolinmóð við þannig bíðum þess að verði aftur bjart Traustur máttur réttra rúna róar geð er vindur hvín Sorgir allar sefast núna, sofðu, unga ástin mín
Submitted by Grave666 — Apr 26, 2025
Ró yfir röstum Ró yfir þröstum Ró yfir höllum Ró yfir gjöllum Ró yfir töngum Ró yfir dröngum Ró yfir hjöllum Ró yfir stöllum Vöknum seint og sjáum sól á himni bláum Ef að líkum lætur leggjum við upp í ferðalag Föngum ferðalanga, fyllum maga svanga, leggjumst sæl og síðan sofum við fram á næsta dag Ró yfir jötnum Ró yfir vötnum Ró yfir fjöllum Ró yfir völlum Ró yfir stjörnum Ró yfir börnum Ró yfir tröllum Ró yfir öllum Förum seint að sofa sátt í okkar kofa. Þó að veður versni vöknum alls ekki fyrir því Þar í hrúgu hrjóta hávær börn til fóta, þau skal ekkert angra, æsir, menn eða skúraský Veggir Útgarðs verja, vopnin okkar merja bæði hjálm og höfuð herfylkinga í vígahug Það er gott og gaman grey að drepa saman Þegar birtu bregður bjargast þeir sem að sýna dug Útgarða- brött er Loka leið, liggur um vötn og sveitir, hefur þar kött og Hugaskeið, hér sofa jötnar feitir Látum kylfur kremja, kinnbein sundur lemja Drekkum mjöð og mungát, meðan höfum við nokkurn þrótt Síðan brjótum beinin, berjum þeim við steininn Svo við dans og drykkju dugum við fram á rauðanótt Vöknum seint og sjáum sól á himni bláum Ef að líkum lætur leggjum við upp í ferðalag Föngum ferðalanga, fyllum maga svanga, leggjumst sæl og síðan sofum við fram á næsta dag
Submitted by Infernal Flame — Apr 26, 2025
Úti blæs og fjörður frýs, fimbulvetur ræður Yfir vakir álfadís, inni loga glæður Varúlfs heyrist vígagól, vargurinn er óður. Álfabarn í krömum kjól, kúrir sig hjá móður Hrynja og skjálfa gljúfragil, grýta þig bjálfar magrir Heima þeir sjálfir halda til, hér sofa álfar fagrir Þrumuguðinn skóginn skók, skjól er Óðinn lofum Lesum við á lærða bók, leggjumst þar og sofum Álfabörn í hárri höll, heyrist enginn grátur Ráfa úti risar, tröll Ráðast álfagátur Kvöldin brenna kaldar senn, kálfsins spenna græðir Völdin renna aldar enn Álfsins penna ræðir Hlýja greiðir hálfa leið, harma- sneiðir kveinið Lýja reiðir álfa eið, arma neyðir veinið
Submitted by BloodShrine — Apr 26, 2025
Einherjar streyma frá Iðavelli, enginn gaf líf sitt við leikinn í dag Flétta í dróttkvætt og fornyrðislag, fimlegar vísur um Gnipahelli Þurrka af sverðunum bleksvart blóðið, brynjunum kasta í Drekkingarhyl, hreinsa og strjúka og hrista svo til Hungraðir allir, svo inn þeim bjóðið Glaumurinn berst yfir gang til okkar, goðin þar sitja og drekka sinn mjöð Yggdrasils skýla þér bolur og blöð, bardagaherir og stórir flokkar Þagnaðu, anginn og þægur vertu, þú ert af ása og konungaætt Fátt er þar úti sem fær okkur hrætt, Freyja þín gætir svo hólpinn ertu Ef ég þessu ljóði lyki líklega við heyrðum köll Horfir hann frá Breiðabliki, Baldur, yfir okkur öll Valhallar blæs til vindurinn, veinandi hvæs og brestir Heimdallur læsir hingað inn, hér sofa æsir mestir Sofðu nú lengi og sofðu vel, sængin er dýrasti dúkur, – geymi þig Óðinn og gleymd sé Hel – gullsleginn svæfillinn mjúkur Fegurðin, gáfur og þokki þinn þykja mér feykinæg borgun Vættirnar geymi þig, vinur minn, við sjáumst aftur á morgun
Submitted by Corpse Grinder — Apr 26, 2025
Brakar í jöklum og beinin eru köld, blásvart myrkrið öskrar því að nú er komið kvöld Gjallarbrú trónir og minnir á sinn mátt Það eru menn þarna úti sem ekkert geta átt Fordæmdir ýlfra og festa enga ró, fingurnir sem eitt sinn bærðust, núna þaktir snjó Meinað að sofa er myrkrið kæfir þá Það eru menn þarna úti sem aldrei birtu sjá Í Hel Hér sefur enginn vel Í Hel Drottningin horfir er dæmdir missa vit, dagurinn er horfinn og með barnið mitt ég sit Tárin þau frjósa er mænir hún á mig Það eru menn þarna úti sem vilja taka þig Í Hel. Hér sefur enginn vel Í Hel Í Hel Hér sefur enginn vel Lífið víst þráir ljós og yl, liggja þar smáir, kaldir, horfa þeir bláir Heljar til, hér sofa náir kaldir
Submitted by Corpse Defiler — Apr 26, 2025
Vanir vísir (Vanir eru vísir) Flesta fýsir (Vissu flesta fýsir) Framtíð finna (Framtíð sína finna) Sögur sinna (Frægðarsögur sinna. Forynja banar ferðalang, Feikn yfir hana rignir. Hreykir sér svanur hátt á drang, Hér sofa vanir hyggnir. Vaknar vorið (Vaknar núna vorið) Barn er borið (Vanabarn er borið) Flýgur Freyja (Flýgur yfir Freyja) Djöflar deyja (Fimbuldjöflar deyja) Nýtt upphaf þegar Freyju þér ég fel Og Frigg skal rækta vandað hugarþel. Hér svala máttu þreytu þinni, Því segi ég það fyrsta sinni: Nú blótum við því barnið sefur vel. Nýr dagur rís og fer svo allt of fljótt. Kvöld færist yfir, loks er komin nótt. Hér svala máttu þreytu þinni, Því segi ég það öðru sinni: Nú blótum við því barnið sefur rótt. Nýr kafli hefst og tunglsins skin er skært, Og skýin hafa hulu sína fært. Hér svala máttu þreytu þinni, Því segi ég það þriðja sinni: Nú blótum við því barnið sefur vært.
Submitted by The Void — Apr 26, 2025
Oy You Give me some beer! Piracy's a crime and crime doesn't pay And we go home poor at the end of the day But I'd rather live my life in rags Than be taped to a desk with a wife as a hag We live each day like there's nothing to lose But a man has needs and the need is booze They say all the best things in life are free So give all your beer and your rum to me! We are here to drink your beer And steal your rum at a point of a gun Your alcohol to us will fall Cause we are here to drink your beer We are here to drink your beer And steal your rum at a point of a gun Your alcohol to us will fall Cause we are here to drink your beer Drink! [x15] We've travelled all the seas for wenches and mead And told great tales of the huntmasters' deeds The quest for a drum of the famous ol' spiced Has shown us the wrath of leviathans might We went back through time to get more rum Though we end up shipwrecked having no fun But heavy metal pirates we must be So give all your beer and your rum to me! We are here to drink your beer And steal your rum at a point of a gun Your alcohol to us will fall Cause we are here to drink your beer We are here to drink your beer And steal your rum at a point of a gun Your alcohol to us will fall Cause we are here to drink your beer [Instrumental] We are here to drink your beer And steal your rum at a point of a gun Your alcohol to us will fall Cause we are here to drink your beer We are here to drink your beer And steal your rum at a point of a gun Your alcohol to us will fall Cause we are here to drink your beer Drink! [x8]
Submitted by Nargaroth — Nov 11, 2025
Á silfur-á Lýsir allan heiminn og augun blá Skera stjörnuhiminn Ég óska mér og loka nú augunum Já, gerðu það, nú rætist það Ó nei Á stjörnuhraða Inni í hjarta springur, flugvélarbrak Ofaní jörðu syngur Ég óska mér og loka nú augunum Já, gerðu það, lágfara dans Allt gleymist í smásmá stund og rætist það Opna augun Ó nei Minn besti vinur hverju sem dynur Ég kyngi tári og anda hári Illum látum, í faðmi grátum Þegar að við hittumst Þegar að við kyssumst Varirnar brenndu, höldumst í hendur Ég sé þig vakinn Ég sé þig nakinn Inní mér syngur vitleysingur Alltaf þið vaða, við hlaupum hraðar Allt verður smærra Ég öskra hærra Er er við aða, í burtu fara Minn besti vinur hverju sem dynur Illum látum, í faðmi grátum Ég kyngi tári og anda hári Þegar að við hittumst Þegar að við kyssumst Varirnar brenndu, höldumst í hendur Ég sé þig vakinn Ég sé þig nakinn Inní mér syngur vitleysingur
Submitted by johnmansley — Nov 11, 2025
Svartkonst och magiska krafter. I natt jag tar den som en tid var min. Jag suger livet ut. Blĺsa till urgammal asken... ...urgammal asken! Jag är världens mörkret. Jag är det dödande vattnet. Jag är livets blod. Du ska bli pinad för dina brott. För dina brott! Sargad för dina synder. Dina synder mot oss alla. Du ska bli tukt ad för att vi skulle helas. Dina sĺr skall giva oss bot... giva oss äntligen bot. Jag längtar efter ett slut. Men vet ej hur det ska ske. Dags har kommit egentligen. Jag är världens mörkret. Jag är det dödande vattnet. Jag är livets blod. Du ska bli pinad för dina brott.
Submitted by Lake of Tears — Nov 11, 2025
The eyes hypnotize The eyes that magnetize They cast a magic spell Rings a distant bell A beacon in the night Shootings beams of spectral light Electric eyes Those laser eyes You must beware those lightning eyes Electric eyes In bold prisms gleam Colors in a dream A shadow disappears My image reappears It happens every time Sending stroke waits down the spine Electric eyes Those laser eyes You must beware those lightning eyes As I ride the cosmic waves The echoes calling from the daze In a realm beyond the skies My reflections in her eyes Electric eyes Those laser eyes You must beware those lightning eyes Electric eyes Electric eyes Electric eyes Electric eyes
Submitted by BloodShrine — Nov 11, 2025
No lyrics have been submitted for this track yet.
Risin upp af jörðu, reikul eru spor, röddin brostin, andinn sár og lamað er mitt þor. Gen ég upp að Vörðu, gái yfir brún, garður hruninn, bæjarrúst og sviðin öll mín tún. Óðinn! Heimdallur! Himnahallir! Baldur! Forseti! Æsir allir! Aumkið ykkur yfir mig, blásið mér í brjóst baráttu- og hefndarmóð, núna er mér ljóst að það er verk sem út af stendur, ég verð að sinna því, valinn þekja fallnir, svartan himin kólguský. Stillið mínar hendur, styrkið þreyttan fót, styðjið við mig, bræður, sækið axir, sverð og spjót. Nár við fætur liggur, nidd er sérhver taug, núna söfnum líkunum og leggjum þau í haug. Hugurinn er styggur, hefndarþorstinn sár, heiðin geymir friðþægingu upp við Jökulsár. Upprisinn á ögurstund, örlög skapa hetjulund. Loksins núna léttast spr, lyftist brún og eflist þor. Birginn þannig býður þeim bitvargi úr Heljarheim. Heldur hann í veika von, vígamaður Óðinsson. Rís hann upp og sjá – Ég er afli gæddur! Ríður burtu Gná – Þessi ógnarkraftur! Berserkur upp rís – Ég er Baldur fæddur! Bliknar heilladís – Ég kem aldrei aftur! Ríðum móti hættum, ríðum yfir heiði. Ríðum móti vættum, leggjum bú í eyði. Upp er risinn Baldur Óðinsson! Hefnum fyrir vígin, hættur okkur lokka. Heiman fetum stíginn, seint mun klárinn borkka. Upp er risinn Baldur Óðinsson
Submitted by Corpse Grinder — Nov 11, 2025
Tindinum náð, titrar þar jörð undir fótum. Takmarkið þráð, glyrnurnar sýnir og klær, og hann hlær. Himinn ber við, hærra en drögum við spjótum. Höður, ég bið, mistiltein Loka mér fær, hann einn nær. Hlaupið er á vopnin þau glitra og glóa. Gefjuni frá, herklæðin óvenju þétt, fjaðurlétt. Örlagastund, undir eins byrjar að snjóa. Undir þá grund, skelfir hvern bölvaðan blett, sérhvern kltt. Öxina keyri ég niður í skítugan skrápinn, skil hana eftir í undinni grafna á kaf. Getinn af Niflheimi, geldur þú fyrir öll drápin. Goðin í nótt þangað fylgja við stjárnanna traf. Þrumunnar Þór, eitt sinn ég þér mína hollustu sór. Þú ert mitt goð, stytta og stoð, Heljar við styrjöldum hef ekki roð. Gættu mín vel, hleyp ég mót Hel, Þar leynast hættur í sérhverjum mel. Allt getur gerst, Baldur nú berst, verði það banamein, sáttur ég ferst. Baldur, þú mér banar, barðist vel og Þór veitti lið. Ffl að verkum flanar, fer ég nú um Niflheimahlíð. Deyja allir mínir árar, örlög dís á kálfskinn párar. Svartar nætur, svíkja fætur, svíður hönd er vatnið gárar. Sár er ég og sár ert þú, sárir göngum burtu nú. Mið- í garði, minnisvarði rís í ásatrú.
Submitted by Celtic Frost — Nov 11, 2025
Ligg ég, lek mín sár, lopinn kólnar minn nár. Dauðinn dregur mig nær, dettur yfir mig snær. Lið mitt liggur hjá mér, látin hersingin er. Hetjur höfðu það af, hefndin frið okkur gaf. Hinsta dreg ég andardráttinn, drengur Óðins missir máttinn. Sortinn teygir sína arma, sól úr austri kastar bjarma. Loksins reiði lægja öldur, laskað sverð og brotinn skjöldur. Bros á varir Baldurs færist, bræðralagið aldrei tærist. Vígamaður Baldur Óðinsson! Gunnar jarl og Grímur deykja, guðirnir þá munu heygja. Vargurinn í valinn beygður, verður seint af nokkrum heygður. Brosi nú til barna minna, brátt mun öllum sorgum linna. Kæra sé ég konu mína kúra upp við syni sína. Nú er ekki neinn sem lifir, nóttin hellist kolsvört yfir. Líf í Baldurs auga blikar, bíður dauðinn, aðeins heikar. Upp er runnin stóra stundin, stöðvast allt við hinsta blundinn. Blæs úr norðri, bærast stráin, Baldur er nú loksins dáinn.
Submitted by NecroLord — Nov 11, 2025
← Go back to Skálmöld