Frelsari
Stígur af himnum óskiljanleg vera Ber feigð í fjöðrum sér Þverrifur gapa, ótal glyrnur okkur eygja Loforð um betri tíð Múgurinn bætir sitt ráð Gefur sig æðri mætti á vald Augljóst hvað tekur við Bið Blindan mér veitir sjón Frelsar mig Prísund Orðsins mín harmabót Frelsari Skrúðganga í nafni verndarengils dauðans Gleðiefni drottnarans Óhlýðinn lýður syrgir brotna drauma Vægðarlaus járnkrumlan kreppt Bið Blindan mér veitir sjón Frelsar mig Prísund Orðsins mín harmabót Frelsari
Submitted by NecroLord — Jul 16, 2026
Á tímum eymdar og volæðis Sker ég skilvit á púls Liggur leiðin niður á við? Blindur tekst ég á loft Slit Svipan smellur, beinin brýt Geldan teymi skrílinn Andlit dregin úr leðjunni Himingjarðir nú gríp Heiminn slít Uppleystur Heimsslit Blæðir út Jörðin skelfur Leysumst upp Myrkrið gleypir Gefumst upp Tilvist þrýtur Taki sleppt Dómsdagsspáin Rætt Hamarinn munda Reiði til höggs Ég heiminn mölva Og huginn með Mín heimsslit
Submitted by NecroLord — Jul 16, 2026