Misþyrming
Album • 2015
No lyrics have been submitted for this track yet.
No lyrics have been submitted for this track yet.
No lyrics have been submitted for this track yet.
This track is instrumental.
No lyrics have been submitted for this track yet.
Dans örvinglaðra anda undir festingu fjörvana stjarna. Ellin dregur dauðann á langinn. Aðframkomið hold verður frjóvgandi mold fyrir ættliði volaðra ævidaga. Þeir þrá að sleppa frá eymd sinni en stjörnurnar reynast of fjarlægar… Ættliður helgra afglapa, velkist í frelsarans nafni. Hátt stíga eldar í neðra, uppljómun morugra hvela. Tár iðrunar falla til fóta, friðþæging blýþungra hjartna. Fár volaðra lima og anda, skuggsjá hins himneska Herra. Vonin smýgur þeim úr greipum, uppljómun spírals blýþungra hjartna óslitin hringganga helgispjalla um ókomna tíð. Aðframkomið hold verður frjóvgandi mold fyrir ættliði volaðra ævidaga. Eldur, hlána, járn, kal og þreifandi myrkur er það sem koma skal.
Submitted by Lake of Tears — Apr 26, 2025
No lyrics have been submitted for this track yet.
Ég byggði dyr í eyðimörkinni, reisti þær í buska. Glæsilegar úr hlyn, skreyttar blómamynstri: Liljur og rósir vafðar saman í fléttum, spíral, gullnu sniði og náttúruformum sem hafa ekki nafn. Langt í fjarska í braut frá öllu stóðu dyrnar stórar, yfirþyrmandi. Læstar. En ekki hafði ég lykilinn. Mikið ofboðslega langaði mig í gegn. Ég ráfaði um eyðimörkina ráðlaus, dögum, vikum saman. Sólin, sandurinn og heitur vindurinn tættu mig. Óbærileg var mér sú ferð, þar til ég loks fann lykilinn. Þá fylltist ég vonarlosta. Ég spratt af stað lengst út í buska en dyrnar voru hvergi, líkt og þær hafi aldrei verið reistar.
Submitted by Grave666 — Apr 26, 2025
This track is instrumental.
← Go back to Misþyrming