Þar sem skepnur reika
Svart upphaf, himininn klofnar Tólf eiturhalar, spretta yfir mig Sjö höfuð, fjórtán horn Rísa úr eldhafi, logandi augu Hendur teygjast, eldtungur engjast Sex vængir hylja, sköpunarverkið Hásætið gnæfir yfir gryfjuna Líf steypt í botnlausu gröfina Hvers þurfum við að gjalda Reistum skepnuna úr dvala Hvað höfum við gert Hvað höfum við gert Hahahaha Hendur teygjast Eldtungur engjast Sex vængir hylja, sköpunarverkið
Submitted by SerpentEve — Jun 16, 2026
Himinn klofinn Myrkrið lekur inn Svartur reykur Þvílík harmleikur Ég grét út til himna Takið mig frá þessari jörðu Takið mig frá þessari jörðu Nú liggur jörðin á barmi Að vera svipt öllu lífi Tortíming mannsins Samhljómur í rústum Í fjarlægð sé ég skýin Þau nálgast ótt Ógeðsleg óhreinindin Nú rignir gnótt Eitur spúandi tungur Svífa í skýjunum Hvað seðji þeirra hungur Við munum falla Svartur reykur Þvílík harmleikur Ég grét út til himna Takið mig frá þessari jörðu Mikill hryllingur Óvinur friðar Naflausar skepnur Algerrar fyrirlitningar Sér hver ögn af hatri Mun dynja á mig Banvænu skýin Færa okkur eitrið Þessi veröld er mér glötuð Þessi heimur er brenndur Eitur rignir Eitur rignir Eitur rignir Holdið brennur Eitrið rennur um æðar Og tungurnar læðast Nú liggur jörðin á barmi Að vera svipt öllu lífi Öll skynvitin rofin Sálin á hvolfi Hatrið yfirvofandi Helvítis andskotans ský Fyllir hjarta mitt af blý Eitur rignir á mig Tungur og eiturský Taka mig og nú ég hnýg Og aldrei aftur sný Til dauðans nú ég flýg Þau ásækja mig enn Þau ásækja mig Og færa vonbrigði Helvítis andskotans eiturský
Submitted by SerpentEve — Jun 16, 2026
Angist fellur á manninn, tortryggni var þeim að bana Trúðu á mig, tresystu og ég mun vísa þér veginn Heimurinn undir mínu valdi Þessa eilífa gjöf sem ég móta Horfðu á mig andsetna skepna, hlýddu mér og dáðu Þú varst uppalinn í helvíti, til að lifa á jörðinni Hlustaðu á mig og ég skal segja hvað verður þér að bana Þú hefur saurgað þennan heim, og því skaltu rotna Eldurinn logar inni í mér Hyldýpið bíður ykkar Þessi líkami er okkar
Submitted by SerpentEve — Jun 16, 2026
No lyrics have been submitted for this track yet.
Rís upp úr djúpinu, fullur af sinni heift Svörtu öldurnar streyma að þér Kæfa þig, þar til þú ei öskrar meir Þar til þú verður blár og uppblásinn Krýndur þara og salt froðu Með rennandi óveðrinu Steypir sér í gegnum búk þinn Springur þig og ekki bólar á meir en bullandi blóðugri hræi Sendir sálir dauðra sjómanna til botnsins Aðeins til að vera gleyptir af óendanlegu vatni Gleymdar sálir sem nærast á þér Þar til ekkert eftir er af þér Nema sjórinn sjálfur Hið mikla líkklæði hafsins Breiðir yfir allt
Submitted by SerpentEve — Jun 16, 2026
Kaldur vindur blæs Hauslaus og ljót Tjörusvartar verur Þau skríða nær Burt með ykkur skepnur Ó burt með þig hræ Farið nú til baka í sjóinn Og komið aldrei á ný Hlýðið mér Hlustið á mig Gráslikjan yfir himni Reykur fyllir minnið Ærandi öskur leika Innst í huga mér Andskotans viðbjóður Örvinglaður Þær leita mig upp Ég dreg upp blaðið Og sverð mitt sker í hold Þau eru of mörg Kollvarpa mig Ég á enga leið út Dauðinn vofir yfir mér Ég get ekki meir Ég get ekki meir Ég get ekki meir
Submitted by SerpentEve — Jun 16, 2026
Jörðin er sviðin og brennd Líttu á þinn verknað Skammastu þín Þessi svívirðing á lífi Þú fagnar því með báli Bólgin af hroka og girnd Hendur þínar eru saurgaðar af blóði Og hjarta þitt fyllt af ranglæti Muldrar andstyggð og lygar Muldrar andstyggð og lygar Baðaðu þig í myrkri Láttu ljósið skolast af þér Brenndir akrar og sviðin jörð Paradís Paradís Paradís Mikil illska fylgir þér Ógeðsleg óhreinindin Komdu með mér og grát ei lengur Í mínum heimi er heimili að finna Logandi kórónan Syngjandi hræin Garðurinn opinn Vertu velkomin heim Paradís, svarthol borðar sál hverja Endalok ríkir aftur Paradís, spillta landið þurkast Eðyilegging skepnunar Ógeðsleg óhreinindi Vertu velkomin heim Hér áttu heima, hér skaltu dvelja Að eilífu Að eilífu
Submitted by SerpentEve — Jun 16, 2026