Undir skyggðarhaldi
No lyrics have been submitted for this track yet.
Heyr kveinstafi mína Augu mín eru döpruð af harmi Leið þú mig i myrkri nauða Leið þú mig i mínum dauða Áru mína gerðu snauða Leið þú mig um harmsins nótt Lof mér loks i návist þinni Að hvilast rótt, skortir allan lífsþrótt Stýr þú mer á veg villu Stýr hönd minni að gjöra illu Þú hlekkjaðir mig Þú lést mig blindan finna þig Þú gerðir myrkur að skýli mínu Án þín ég hefði ei sál minni glatað Án þín hún hefði til himnanna ratað Ó, þú sánni drottnari þessa heims Eg þjóna þér í ranglæti, konungur minn Af lotningu ég fell Frammi fyrir musteri þínu Horfum niður í helmyrkrið Svarta hlið grafar Huggun þar finnur ei Dapurt og angurvært hjarta
Submitted by VladTheImpaler666 — Jun 28, 2026
Með klofnum tungum Úr löskupum lungum Stefni ég veröld minni Í óværu allri Lof mér að tærast Leysast upp Úr öskunni í eldinn Steypist örvinglað hræ sjálfsins Í flaumi stjörnuryks Liðast holdlaus vitundin Eftir kræklóttum stígum Kollvarpast hún Afsprengi gjörða sinna; Formleysingi Eftir stendur liðið lík Sundar tætt og barið Í viðjum þess þó bærist líf Sem getur livergi farið Hafdu fyrir mitt Hatur þúsundfalt Séhrvert fúkyrði Böl skal stefnt þér allt Í holdi mínu brýst ég um Djúpt í hungarangri Hjarta mitt, nú fölnað brum Í tilvist minni rangri (Prísund mín er hold / mín maðkétna mold) Ó, hvað ég gæfi Fyrir sven og sælu Undir svarti sólu Í holdi mínu ég brýst um Og tæti sjálfið í sundur
Submitted by VladTheImpaler666 — Jun 28, 2026
Alvaldur Alvaldur konungur neðra Upphimins sólir, þig tignandi Fara sinna ferða Himnanna tjöld, geimanna fjöld Lofa þig lávarður neðra Á himnum í heiði ofar Þig hrapandi stjörnumergðin lofar Hlekkjaðir vér erum, undan andavaldi Við hettu þinni klæðumst þjáðir Undir skyggðarhaldi Hryggðarsporin, herra minn Í neðraríki leið mig inn Ég sá himnana rifna; Úr gapandi tóminu Teygðu sig angar, fálmarar Í hinum ónáttúrulegustu litum Sem engin hafa nöfn Þar við fallinna englaskarans Fölsku sigursöngva Þér hörpur óma í hverfulum Feigðarboðahljóma Gegnum svarta sali Til hins neðra Sálir þessar munu aldrei Til sinna feðra safnast
Submitted by VladTheImpaler666 — Jun 28, 2026
No lyrics have been submitted for this track yet.